Velkomin

Upplýsingaþjónusta menningaráætlunar Evrópusambandsins er flutt í húsakynni Kvikmyndamiðstöðvar Íslands að Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík. Póstfangið info@evropumenning.is er orðið virkt.


Á þessari heimasíðu er að finna upplýsingar um Menningaráætlun Evrópusambandsins (2007-2013) / Culture Progamme (2007-2013) og Upplýsingaþjónustu menningaráætlunar Evrópusambandsins, Cultural Contact Point á Íslandi.

Menningaráætlun Evrópusambandsins veitir styrki til verkefna í öllum listgreinum  og á sviði menningararfleifðar auk þess að styrkja starfsemi evrópskra tengslaneta og menningarstofnana.

Áætluninni er ekki skipt milli menningarsviða. Samstarfsverkefni geta verið innan einnar listgreinar eða menningarsviðs, s.s. leiklistar, tónlistar, myndlistar, menningararfs o.s.frv. eða verið þverfagleg í samstarfi ólíkra greina.
 
Meginmarkmið áætlunarinnar er að efla menningarlega samkennd Evrópubúa.

Menningaráætlunin styrkir einnig starfsemi evrópskra menningarstofnana, samstarfsnet, evrópska menningarviðburði og menningarborgir Evrópu. Einnig eru veitt evrópsk menningarverðlaun á vegum áætlunarinnar s.s á sviði menningararfs, byggingarlistar, bókmennta og dægurtónlistar.

Sértæk markmið áætlunarinnar eru og þau þarf að hafa í huga við gerð umsóknar:
 
•  að auka samskipti og samstarf þeirra sem starfa við listir og menningarmál í Evrópu
•  að auka útbreiðslu einstakra list- og menningarviðburða og verka innan Evrópu
•  að efla menningarleg samskipti og stuðla að skilningi milli þjóða og þjóðfélagshópa
 
 
Hér má finna nánari upplýsingar á heimasíðu menningaráætlunar Evrópusambandsins.

 
Umsóknir
 
Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um skilyrði fyrir umsókn
 
Umsóknir vegna styrkja  2012
Þýðingarverkefni
(Strand 1.2.2.)
Umsóknarfrestur 3. febrúar
 
Styttra samstarfsverkefni við þriðja land utan ESB (Strand 1.3.5)
Umsóknarfrestur 5. maí
 
Samstarf til lengri tíma
(Strand 1.1.) 
Umsóknarfrestur 3. október

Styttri samstarfsverkefni
(Strand 1.2.1)
Umsóknarfrestur 3. október

Stuðningur við menningarhátíðir (Strand 1.3.6.).
Umsóknarfrestur er 15. nóvember

Viðburðir á næstunni....
 Sjá nánar hér